Mikklar hörmungar sem jafnast á við hriðjuverk hafa orðið í Mosfellsbæ og ég hef greinilega mist af því í fréttunum!!
Þannig var að ég og Halla vorum að fara og láta yfirfara hárið á henni nema hvað að við ákváðum að stoppa í Mosó og fá okkur kryddbrauð á Pizzabæ, því það var orðið alltof langt síðan síðast.
Nema að þegar við komum að staðnum blasti við okkur þessi hörmung.....HRÓI HÖTTUR!!!!
Þeir hafa gert innrás í litla bæinn okkar og tekið undir sig besta stað bæjarinns!!
Eftir að við höfðum náð andanum ákváðum við að læðast samt innfyrir virkið, dulbúin sem félagar þeirra úr skóginum og sjá hversu mikill skaði hafi orðið. Pöntuðum þetta sem leit út fyrir að vera "Kryddbrauð" sem ég tók eftir liggjandi hálf rotið á næsta borði, því það virðist sem þessir villimenn úr skóginum hugsi ekkert um hreinlæti og láti afgangana bara vera áfram þó fólk sé búið að éta.
Eftir að við pöntuðum settumst við niður eftir að hafa fært til afganga dagsins af borðinu.
Biðum við sallaróleg í þeirri von að villi líðurinn hafi þó haft það í sér að hafa haldið uppskriftum fyrverandi ráðenda við.
En áður en við komumst að því þá komumst við að því að við höfðum verið blekt og svikin, og vantaði bara hnífinn í bakið, því eftir korter sem var biðtíminn eftir máltíð okkar, var ekkert komið á borðið.
eftir hálftíma kom að stundinni sem við höfðum beðið eftir. Og til að lifa sig inn í þennan sora af villimönnum fengum við ekki einusinni afsökunar beiðni frá þjóninum sem við vorum fyrir hálftíma að borga þóknun!!!
Þá fyrst fór að dala í þessari för okkar því eftir fyrsta bitan var það ljóst að sorinn og villimannafnykurinn hafi fylgt þeim úr skóginum í bragðið af máltíðinni.
Öll von er úti, bærinn verður aldrey samur eftir þetta.....þetta stórslys...snökt
.
Þannig að við læddumst út aftur og það eina sem við gátum gert var að horfa til baka á þá tíma þegar Pizzabær var við völd.....Ó hver dásemi......
Óska eftir leynilegum samkiptum við ótiltekna andspyrnuhreifingu sem ég veit að leynist á ótilteknum stað, að undirbúa ótilteknar aðgerðir, gegn ótilteknum aðilum..... sem dvelja í skýrisskógi
.